11. marsHafþór Ó. Viðarsson
Nú er ein vikan liðin til viðbótar og það er ekkert sérstakt að segja nema það að það eru núna bara seks dagar þar til að ég fæ íbúðina afhennta.Hér er búið að vera næg vinna og ég hef verið að vinna allar nætur.Eins og við var að búast þá komst ég ekki á hina árlegu aðalfundi Hvítasunnukirkjunnar sem að voru haldnir í lok síðust viku.
Ég er frekar tómur um það hvað ég á að setja hér í þetta sinn, nema það að þessi vinna er farin að taka sinn toll á manni og það verður GOTT að komast í frí þegar að loðnu vertíð lýkur. Það verður öðru hvoru megin við helgina.
Ég segi þetta gott í bili Hafþór.
2. MarsHafþór Ó. Viðarsson
Snjór, snjór, meira af snjó !!!Já það er svo sannarlega búið að snjóa síðasta sólahringinn, en það byrjaði um miðnætti í gær laugardagskvöld og linnti ekki látum fyrr en eftir hádegi í dag sunnudag. Ég er að vinna á næturvakt og í morgun þegar að vaktaskipti voru var gjörsamlega blindbylur og skygni minna en fimm metrar, það tók mig klukkutíma að komast heim en ég fékk far mesta leiðina en ég skildi bílin eftir í vinnuni. Skaflar sem að hafa skafast upp 3-4 metrar en vestan við húsið okkar nær skaflinn upp á þak. Ég ætla að setja eithverjar myndir inn á myndaalbúmið á morgun. Núna er semsagt besti fararskjótinn þessar tvær lappir sem að eru áfastar líkamanum + góð stígvél og hlífðarfatnaður.
Í dag felldum við niður samkomu enda var fólk hvatt til þess að halda kyrru fyrir á heimilum sínum, þannig að þá fékk maður bara góða hvíld í dag.
Hér í Ísfélaginu er verið að klára að frysta loðnu (hæng á rússlands markað) og klárast það upp úr miðnætti, svo er þrif og slegið úr skápum. Annað kvöld verður svo farið að frysta loðnu hrogn úr farmi Álseyjar en hún kom í morgun með 1500 tonn.
Ég ætla að láta þetta duga í bili.
Kveðja Hafþór.
28.FebrúarHafþór Ó. Viðarsson
Loðnuveiðibanni aflétt !!!Já það varð mikill léttir hér í Eyjum þegar að ákveðið var að aflétta veiðibanni á loðnu. Enda eru hagsmunir vestmanneyinga mjög miklir og hagsmunir hinns almenna verkamanns miklir. Þannig að núna eru vaktir hafnar aftur og ég fer að vinna í kvöld og nótt.
Síðastliðna nótt snjóaði mikið og er þungfært innanbæjar, ég var að moka hér heima núna áðan og það er slati eftir enn.
Í kvöld byrjar mót í Kotinu sem að heitir skóli föðurinns, en því miður er ekki möguleiki á því að ég verði þar. Ég sendi mínar kveðjur til allra þeirra sem að ætla sér að vera þar og veit ég að andi Guðs munn blessa ríkulega.
Hafþór Ó. Viðarsson
25. FebrúarHafþór Ó. Viðarsson
Já nú er næturvaktin, enn eina ferðina er hringlanda hátturinn. Ég er alltaf að skipta yfir í dag og nótt þriðja skiptið á níu dögum, en síðustu dagar hafa verið fínir og hef ég afrekað hluti sem ég hef verið að fresta í sí og æ.núna er ég á vakt og verð líka á morgun aðfaranótt þriðjudags, en Álsey kom með 500 tonn í kvöld. En það tekur ca 36 klst að frysta það. Nú vonar maður að það komi eitthvaðút úr leiðangri Hafransóknarstofnunar sem að hófst í gær, það væri óskandi að það yrði gefin út eitthver kvóti eða veiði þak á sólahring sem að væri nóg ti að halda vinnslu gangandi í þeim sjávarþorpum sem að eru háð uppsjávar veiðum.
Hvað þýðir þetta veiðibann fyrir fólkið á þessum stöðum, það er nú það þetta þýðir tekjuskerðingu upp á tæplega fjögra mánaða laun fyrir verkafólk og trúið mér fólki munar um slíka fjármuni !
Einnig ber að nefna alla þjónustu svo sem verslunarfólk, iðnaðarmenn og ekki síst rekstur á bæjarsjóð ef að útsvar lækkar, um já það er talað að 3,8 miljarðar hverfi úr efnahagslífinu og þetta eru ekki pappírs peningar þó að Glitnir eða bankarnir hagnist eða tapi þessari upphæð þá eru afleiðingar þess á allt öðrum mælikvarða en fyrir 4000 manna samfélag.
Ef að við framreiknum þetta eins og hefur komið framm í fjölmiðilum munar þetta 800.000- kr að meðaltali á fjölskyldu .Tölurnar tala sínu máli.
Það var samkoma í dag sem að var mjög góð, ég var með í að stjórnaði lofgjörðinni allavega átti eitthvern þátt í því en heilagur andi leiddi hana. Það er gaman að sjá hvað mikklar breytingar geta orðið í lofgörð ef að maður leyfir anda Guðs að nota mann og hlusta á það hvað hann vill en ekki láta stjórnast af fyrirframm ákveðnu programmi.
Við vorum með bænamorgun fyrir samkomu og það var alveg yndislegt að fá eð vera frammi fyrir Guði og dvelja í nærveru hanns svona fyrir samkomu, rétt eins og það er uppbyggjandi alla aðra daga.
En ég ætla að segja þetta gott í bili, Megi Guð blessa ykkur og munið að taka ykkur tíma í dag til að eiga samfélag við Föður okkar á himnum.
Hafþór Ó. Viðarsson
20 FebrúarHafþór Ó. Viðarsson
Halló nú er ég að verða ringlaður og vonsvikinn !!Já Loðnuvertíð virðist verða alveg heilar fjórar vaktir en ekki fjörtíu + , og það sem ég fæ út úr þessu er að snúa sólahringnum við á tveggja daga fresti.Það er frekar óþgæilegt að vera með þennan hringlandahátt. Ég var að vinna um helgina þ.e. aðfaranótt Sunnudags og mánudags svo var vinna á þriðjudag og miðvikudags morgunn og núna miðvikudagskvöld er næturvakt og sennilega er næturvakt aðfaranótt föstudags.
Þannig að ég er að verða hálf ruglaður á þessu öllu.
Vonsvikinn já eru ekki þessir fræðingar í hafransóknarstofnum ekki búnir að slútta loðnuvertíð 2008, já og sjávarútvegsráðherra búin að banna veiðar.(Jónas sem betur fer ert þú ekki að vinna hjá Hafró)
Þetta er alveg rosalegar fréttir fyir Vestmannaeyjar, og alla Vestmanneyinga þ.a.m. mig. Ég var búin að hafa vonir á því að vera á vöktum í a.m.k. mánuð en svo virðist vera að það verði skítnar fjórar vaktir...... arggg....
En þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir Vestmannaeyjar og alveg klárt mál að áhrif þess að loðnan brást verða miklar eins og fréttir greina frá, verður tekjumissir fyrirtækja rúmir tveir miljarðar. Margfeldis áhrif þess fjármagns á alla bæjarbúa eiga eftir að verða mikil öll þjónusta og bæjarfélagið allt á eftir að verða vængbrotið a.m.k. fram á haust.
Við verðum að treysta Guði fyrir þessu, og biðja þess að atvinnuvegurin eigi eftir að jafna sig á þessu áfalli.
Segjum þetta í bili.
Hafþór.
17 Febrúar 2008Hafþór Ó. Viðarsson
Vá er maðurinn dauður, eða hvað ?Nei ég er á lífi, ennþá.
Hvað er hægt að segja nema það að loksinns gaf ég mér tíma til að setja nokkur orð hér inn. Núna er ég í vinnu í Ísfélaginu sem vélstjóri og er á vakt í nótt og það er gott þegar að allt gengur hnökralaust fyrir sig þá er hægt að setja eitthvað hér inn.
Mig langar að byrja á því að óska honum Árna stórvini mínum til hamingju með nýja hjólið sitt ekkert smá tæki það.En það er að sjálfsögðu frá mörgu að segja eftir nokkra mánaða fjarveru hér á blogginu eða síðan 2. des.
Og ber að nefna Jólatónleika með Óskari og Laugu þar sem að ég var tæknistjóri og hljóðmaður, en það fór allt alveg ágætlegar og komu rúm 600 manns á þá tónleika.
Jólin voru fín enda kærkomin hvíld. Jóla fjölskylduhátíð í kirkjunni, Áramót.
Nýtt ár 2008 vinna og kirkjan alltaf nóg að gera, við fengum heimsókn frá systkynum okkar frá Danmörku Leif og Susan en þau eru með kristniboð í Kenýa en þar hafa verið miki átök síðan í byrjum janúar en við byðjum fyrir þeim að Guð megi vernda og blessa starfið þeirra þar. Helgina 18-20 janúar kom hingað nærri 200 manna hópur frá Nýrri kynslóð kristileg skólasamtök og héldu hér mót sem að var frábært og yndislegt. Svo eru það stóru fréttirnar en ég keypti mér íbúð sem að er nú saga til næsta bæjar en hvað á ég að segja meira um það nema að ég fæ afhennt þann 15 mars og ég er farinn að sanka að mér dóti til að seja í hana. Ég fór til Reykjavíkur fyrir tvemur vikum og þar keypti ég mér sófasett og dót í eldhúsið svo að ég geti nú allavega látið ykkur hafa glas til að drekka úr þegar að þið kíkið. Einnig áskotnaðist mér flensa í þessari reysu og er ég ekki búinn að ná mér fullkomlega eftir það. En hér er ég í Ísfélaginu og rita þessi orð ætli það sé ekki vissara að fara að vinna eitthvað, Drottin blessi ykkur öll.
Kveðja Hafþór Óskar Viðarsson
2. DesemberHafþór Ó. Viðarsson
Það eru að koma Jól !!!!
Ekki er ég mikið farinn að huga að því að Jólin nálgist, en þau koma líka eins og hvað annað. Jú ég er búinn að setja upp 3-4 jólaseríur og farin að huga að jóladagskrá í kirkjunni og fyrir ykkur sem að langar að vita um eitthvað sem er í fréttum að þá ber að nefna tónleikana Eyjajól sem verða 21 og 22 des. og svo verður fjölskylduhátíð laugardaginn 29 des.
Frá síðasta bloggi er ég búin að vera að gera ýmislegt eins og vinna í Ísfélaginu sem vélstjóri, sjá um hljóðkerfi á kveikingu jólatrés á stakkó, fara í jólahlaðborð, sjá um lofgjörðina í dag sunnudag, fara á kaffihúsamessu í Landakirkju, þannig að ég sit ekki auðum höndum og jú halda áfram með verkefnið fyrir lúðrasveitina.
Vonandi hefur eitthver gaman af þessum fréttum ekki nema að þetta kemur í staðinn fyrir það að þið, vinir mínir eru ekkert mikið fyrir það að hringja en ég fyrirgef ykkur fyrir það. Ég veit að núna er byrjuð vinnan við jólatónleikana í Fíladelfíu, ég segi bara gangi ykkur vel.
Bless í bili.
Hafþór Ó. Viðarsson
29 NóvemberHafþór Ó. Viðarsson
Heill heilsu !!Já það tók snöggt af að afgreiða þessa flensu.
Nú er ég farin að vinna í Ísfélaginu þar sem ég er að keyra fristingu á síld ásamt Guðlaugi Friðþjófssyni í nokkra daga.
Ég var að setja inn nokkrar myndir frá ferð okkar Árna , Sindra og míns til Marocco.
Endilega kíkið á !!
Segi þetta gott, bæ.
Hafþór Ó. Viðarsson
27. NóvemberHafþór Ó. Viðarsson
ÆÆÆ veikur ,,,,
Núna er ég veikur, ekki gott.
Ég fékk flensu á sunnudagskvöldið og er búin að vera veikur síðan þá en þetta er nú allt að koma, er að hressast.
Hjá mér er bara gott að frétta eins og ég skrifaði um í síðustu færsu minni þá var stefnan sett á heimsókn til slátra og var hann voðalega ánægður með löppina á mér. Svo var það hlegin uppi í koti en hún var alveg meiriháttar, dásamlegt þegar að við leyfum Guði að eiga við okkur án þess að eitthvað annað sé að trufa. Þetta mót sem bar yfirskriftina Föðurhjarta Guðs var fræðandi ,skemtilegt og uppbyggjandi. Við fengum að verða vitni af undarlegum atburðum, atburðir sem við skiljum ekki ??
Tann fyllingar sem voru silfur breyttust í gull !!! Margir sem voru með skerta heyrn fengu heyrina !!! Einstaklingur sem var með hryggskekkju læknaðist og gat gert hluti sem hún hafði aldrey getað gert !!! Allskyns kvillar læknuðust bæði á líkama og sál.
Hún Árný Heiðarsdóttir var í báðum fréttablöðunum hér í eyjum í síðustu viku og kom það til vegna þess sem að hún fékk að upplifa bæði hér í eyjum og í Toranto en það var út af Gullinu !!! eða þessi efni, kolefni, köfnunarefni og ál. ( hægt að lesa um þetta á bloggi oem og í blöðum t.d. http://blog.central.is/zulu )
En það sem er líka frábært að allir þeir sem að voru á mótinu hafa vitnað um meiri kærleika og þrá eftir nærveru Guðs og hafa fengið að upplifa þessa nærveru Guðs á nýjan hátt.
Nú er ég orðin spenntur !! Það eru nýir tímar frammundan hér á Íslandi tími endurnýjunar og vitjunar.
Ekki má gleyma fimmtudags kvöldinu sem var þakkargjörðar hátíð á þakkargjörðardag Bandaríkjamanna. Í kirkjuni er ein fjölskylda sem er frá Ameríku og vildu þau og margir í kirkjuni halda þessa hátíð með pompi og pragt og var það mjög skemtileg kvöldstund, þar áttum við stund saman og minntumst þess sem við erum þakklát fyrir, ég vil hvetja fólk að hugsa um hvað það er þakklátt fyrir en ekki hugsa bara "KANAR þeir eru svo væmnir" en þetta er gott og nauðsinlegt fyrir alla menn og konur að vera þakklát fyrir það sem það hefur.![]()
En nú er komin tími til að reyna að gera eitthvað af viti en núna síðustu daga er ég búin að vera að mixa hljóðupptöku sem ég tók á tónleikum lúðrasveitarinnar þann 10 nóv.
Segi þetta gott í bili.
Hafþór Ó. Viðarsson
11-11 2007Hafþór Ó. Viðarsson
Örlagadagurinn ?Fyrir einu ári síðan var mikill örlagadagur í mínu lífi en þá varð ég fyrir því óhappi að detta niður um fjóran og hálfan metra í Hvítasunnukirkjuni Vestmannaeyjum og varð síðan kveikjan af því að ég fór að blogga.
Eins og fyrir ári síðan er helgin búin að vera mjög svo annasöm með mikilli vinnu bæði í Skipalyftunni sem og vinna varðandi nótt safnana , tónleika hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja.
En núna urðu eingar byltur, föll eða annað sem að slæmt getur talist.
Hvað er svo að gerast ?
Ég er að fara til doksa á fimmtudag í Reykjavík til að láta kíkja á hælin, en ég ætla að fara á námskeið sem verður haldið í Kirkjulækjarkoti frá fimmtudags kvöldi til sunnudags sem ber nafnið Föðurhjarta Guðs og hlakka ég mikið til.
Samkoman í dag var mjög góð og áhugaverð fyrir þær sakir að Árný Heiðarsdóttir var að segja okkur frá ferð sinni til Toranto í Canada en hún fór ásamt 40 manna hópi á námskeið þar í kirkju sem ber nafnið Toranto airport cristian fellowship. Þar eru mörg tákn og undur að gerast og við fengum að sjá smá brot af því í dag.
En núna er ég hér að skrifa og láta vita af því að ég lifði þennan dag af án nokkura óhappa eða slysa.
Hafþór Ó. Viðarsson